Nylidar HSG

mánudagur, janúar 29, 2007

Helgin og það sem er framundan

Fjallamennska 2: Við fórum fámennur en fríður flokkur á fjöll um helgina. Gengum smá hring í nágrenni fjallsins Löðmundar. Allir á skíðum og gekk bara mjög vel. Tjölduðum í rigningu og hávaða roki í gili einu við Löðmundarvatn. Æfðum lítillega ílaleit, ísaxarbremsur og snjóhúsagerð en fyrst og fremst var þetta skíðaferð. Mættir voru: Maggý, Góli, Tinna, Sólveig, Sveinn og Gaddi. Takk fyrir góða ferð :-)

Næst á dagskrá er sveitarfurndur þann 6.feb. Við ætlum að hittast kl. 19:00, þrífa aðeins og spalla saman.

Kv. Maggý

2 Comments:

At 2:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

6.jan hhmmm? meinaru 6.feb...

 
At 2:48 e.h., Blogger Maggý said...

He he játs 6.feb auðvitað :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home