Nylidar HSG

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Fyrstuhjálparæfing.

Það verður haldin fyrstuhjálparæfing fyrir N1 og N2 í húsi HSK(Hjálparsv. skáta í Kópavogi) á morgun kl 19:30. Hún Eva hringdi sérstaklega í mig í dag til að minna mig á þetta. Ég hvet ykkur til að mæta, þetta fer inn í einkunnina ykkar !!!! Ég veit að þetta er stuttur fyrirvari en ég var ekki búin að sjá þetta á innra netinu.

Varðandi snjóflóðaílana þá er stjórn að skoða málið varðandi það hvort þið fáið að kaupa, því að ílarnir eru niðurgreiddir af sveitinni um c. a. 10.000 kall. Þetta er bara spurning hvort að þið verðið ekki örugglega áfram í sveitinni því að annars er sveitin að leggja út fullt af pening til fólks sem kannski hættir svo strax.

Oftast hefur það verið þannig að Nýliðar2 hafa fengið að kaupa áður en þeir ganga í sveitina.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home